Pólsk kvikmyndahátíð, Blakkát í Egilsbúð og silkiprentsmiðjur á Stöðvarfirði setja svip á helgina í Fjarðabyggð. Bleikur október heldur líka áfram með hreyfingu og samveru og á miðvikudag verður boðið upp á tónlist og uppistand á Bleiku kvöldi í Skrúð.
Dagana 16.–23. október gefast því ýmis tækifæri til að njóta menningar, prófa eitthvað nýtt og hitta fólk.
Pólskar kvikmyndir alla helgina
Sjötta pólska kvikmyndahátíðin í Fjarðabyggð hefst í Valhöll á Eskifirði í dag, föstudaginn 16. október, og stendur fram á sunnudag. Ókeypis er á allar sýningar og aðra viðburði hátíðarinnar og allar kvikmyndir eru sýndar með enskum texta.
Fyrsta mynd helgarinnar, Double Trouble, verður sýnd kl. 17:00 í dag og Life for Beginners kl. 18:45. Á laugardagsmorgun kl. 10:00 verður fjölskyldumyndin Pixie. The New Beginning á tjaldinu. Síðar um daginn taka við stuttmyndir, kvikmyndasmiðja og kvöldsýning.
Hátíðinni lýkur á sunnudag með sýningu á Capo kl. 17:00 og The Linnet kl. 19:00. Dagskráin gefur gestum færi á að kynnast ólíkum hliðum pólskrar kvikmyndagerðar, allt frá nýjum verkum til sígildrar ádeilu frá árinu 1982.
Blakkát á sviði í Egilsbúð
Leikritið Blakkát eftir Björk Jakobsdóttur verður sýnt í Egilsbúð í Neskaupstað í kvöld, föstudaginn 16. október, kl. 20:00.
Þar er tekist á við alkóhólisma, minnisleysi og mannlegan breyskleika með farsann að vopni. Áhorfendur kynnast Bokku, sem vaknar á hótelherbergi eftir árshátíð og þarf að púsla saman því sem gerðist.
Miðar eru í sölu á svið.is. Sýningin er ekki við hæfi barna yngri en 16 ára og ungmenni á aldrinum 16–18 ára þurfa að vera í fylgd með fullorðnum.
Eigin myndir á pappír og textíl
Á Stöðvarfirði geta áhugasöm látið reyna á sköpunargáfuna í silkiprentsmiðjum með myndlistarkonunni Gillian Pokalo. Smiðjurnar verða að Bankastræti 1 í dag, föstudag, og á morgun, laugardag, kl. 11:00–15:00 báða daga.
Þátttakendur útbúa silkiprentsramma með eigin myndefni og læra að prenta á pappír, textíl og fleiri efni. Rammann fá þau síðan með sér heim til áframhaldandi tilrauna. Verðið er 8.000 krónur á mann.
Hreyfing og samvera í Bleikum október
Krabbameinsfélag Austfjarða heldur áfram dagskrá Bleiks október. Á laugardag kl. 11:00 verður zumba með Lilju Björk í íþróttasalnum á Breiðdalsvík.
Mánudaginn 19. október verður spinning og stöðvaþjálfun á Fáskrúðsfirði kl. 17:30 og Fjarðagusa í Eskifjarðarlaug kl. 20:00. Miðvikudaginn 21. október verður svo bleikur tími í Eyrinni á Reyðarfirði kl. 16:30.
Sama kvöld býður félagið til Bleiks kvölds í Skrúð á Fáskrúðsfirði. Húsið opnar kl. 19:00 með fordrykk og léttum veitingum og dagskráin hefst kl. 20:00. Karítas Harpa og Aron Leví sjá um tónlistina og Snjólaug Lúðvíksdóttir stígur á svið með uppistandið MJÖG FÍN BARA.
Aðgangur er ókeypis en gestir geta styrkt starf Krabbameinsfélags Austfjarða með frjálsum framlögum.
Nánari upplýsingar um viðburðina má finna í viðburðadagatali Fjarðabyggðar.
