Fjölbreytt lista- og menningarstarf fór fram á vegum Menningarstofu Fjarðabyggðar sumarið 2026. Sýningar, tónleikar, listasmiðjur, listamannadvalir og skapandi sumarstörf settu svip sinn á sumarið í byggðarkjörnum sveitarfélagsins.
Yfir 30 viðburðir á Innsævi
Innsævi – listahátíð Fjarðabyggðar, sem haldin er annað hvert ár, fór fram í júní. Yfir 30 viðburðir voru á dagskrá, meðal annars myndlistarsýningar, tónleikar, gjörningar, vinnustofur og fjölskylduviðburðir.
Meðal stærstu viðburða hátíðarinnar voru tónleikar flautuleikarans Stefáns Ragnars Höskuldssonar, sem haldnir voru í samstarfi við Listahátíð í Reykjavík. Sérstök dagskrá var einnig í boði fyrir börn og ungmenni. Yfir 250 gestir tóku þátt í almennri tónleikadagskrá og dagskrá fyrir skóla.
Ungmennatónlistarhátíðin glott.fest var haldin í tengslum við Innsævi og opnaði sjómannadagshelgina í Neskaupstað. Listakonan Julie Lie stýrði jafnframt skapandi jurtavinnusmiðjum fyrir börn og fullorðna.
Ráðstefnan Skapandi Austurland fór einnig fram á hátíðinni í samstarfi við Austurbrú og menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið. Yfir 30 þátttakendur úr skapandi greinum komu víðs vegar að af landinu. Þar var rætt um sjóði, samstarfsmöguleika og leiðir til að efla starfsumhverfi listafólks á Austurlandi.
Myndlist í ólíkum byggðarkjörnum
Sýningin Óður til niðarins var opnuð í gamla barnaskólanum á Eskifirði og tileinkuð Magnúsi Pálssyni, fyrsta listamanni Fjarðabyggðar. Yfir 70 gestir komu á opnunina.
Á sýningunni voru verk eftir Magnús ásamt verkum Ásdísar Sifjar Gunnarsdóttur, Kötu Jóhanness, Linusar Lohmann, Tinnu Guðmundsdóttur og Vikrams Pradhan. Sýningin skapaði samtal milli kynslóða listafólks og var liður í að efla faglegt samtímalistastarf í sveitarfélaginu.
Á Reyðarfirði var sýningin Það sem fjörðurinn geymir sett upp með verkum Önnu Ólafar Jansdóttur og Louisu Matthíasdóttur. Sýningin tengdi saman myndlist 20. og 21. aldar og landslag Reyðarfjarðar.
Fimm sýningar í Þórsmörk
Fimm sýningar hafa verið settar upp í Þórsmörk það sem af er ári. Þær eru Skraut, hnoss og faldir hlekkir eftir Kötu Jóhanness, Epla π eftir Heklu Kollmar, Austurland frá Glettingi / Jusqu'à Paris eftir Friðgeir Kristjánsson og Victor Givois, lokasýning skapandi sumarstarfa, Þrá í þráð, og Völvumyrkvi eftir Helgu Dorotheu Fannon.
Helga Dorothea rannsakaði austfirskt landslag, þjóðtrú og sögur tengdar völvuleiðinu á Hólmahálsi meðan á listamannadvöl hennar stóð. Afraksturinn varð sýningin Völvumyrkvi, sem stendur fram á haust.
Alls bárust 70 umsóknir um listamannadvöl í Þórsmörk og 19 listamenn dvelja þar á árinu 2026. Til að mæta eftirspurn var sjö listamönnum einnig boðin dvöl í Jensenshúsi á Eskifirði. Þar hafa auk þess fimm fræðimenn og skáldsagnahöfundar dvalið í vor og sumar.
Gestir listamannadvalanna leggja sitt af mörkum til samfélagsins með smiðjum eða opnum viðburðum. Þannig gefst íbúum tækifæri til að kynnast skapandi ferli þeirra og sjá hvaða innblástur þeir sækja í samfélagið og umhverfið.
Vel sóttar listasmiðjur
Sex ungmenni tóku þátt í skapandi sumarstörfum Menningarstofu. Afrakstur starfsins var sýndur í Þórsmörk á sýningunni Þrá í þráð.
Um 40 börn á aldrinum 8 –13 ára tóku jafnframt þátt í listasmiðjum Menningarstofu og mörg þeirra sóttu fleiri en eina smiðju. Boðið var upp á Fab Lab bola- og mynstursmiðju í Neskaupstað, myndlistarsmiðjuna Litla listasetrið á Reyðarfirði, leiklistarsmiðjuna Leikur og sprell á Eskifirði og tónlistarsmiðju í Skrúð á Fáskrúðsfirði.
Starfið styrkt til framtíðar
Tveir verkefnastjórar hafa verið ráðnir til Menningarstofu. Annar sinnir barnamenningu og tónlistaruppbyggingu og hinn listamannadvölum, sýningum og myndlistarverkefnum.
Menningarstofa hefur einnig hlotið tveggja milljóna króna styrk úr Bókasafnasjóði til viðburðahalds í bókasöfnum sveitarfélagsins í tengslum við menningarhátíðir.
Menningarstarfið heldur áfram af krafti í haust með BRAS – Barnamenningarhátíð Austurlands, tónleikaröðinni Víkurvaka, komu Þjóðaróperunnar á Eskifjörð og fjölbreyttri dagskrá á Dögum myrkurs.





