Fara í efni
25.08.2017 Fréttir

Sameiginlegur matseðill í öllum leik- og grunnskólum Fjarðabyggðar.

Deildu

Við gerð matseðla og uppskrifta er lögð rík áhersla á að farið sé eftir nýjustu ráðleggingum frá landlæknisembættinu um næringargildi sem styðjast við samnorrænar næringarráðleggingar. Ráðleggingarnar sem unnið er má sjá hér. Allar uppskriftir sem stuðst er við eru unnar af næringarfræðingum. Matseðilinn rúllar á 7 vikna fresti og þeir sem sjá um matinn koma til að hafa úr nokkrum uppskriftum að velja hvern dag.

Lagt er upp með að fiskur eða fiskréttir séu tvisvar í viku, kjöt eða kjötréttir tvisvar í viku og súpur, skyr eða hrísgrjónagrautur einu sinni í viku auk þess sem boðið sé uppá grænmetisrétt tvisvar í mánuði. Grænmeti, salat og ávextir eiga að vera í boði alla daga.

Í vikunni var svo undirritaður samningur við Fjarðaveitingar um umsjón með skólamáltíðum í Nesskóla, Grunnskólanum á Eskifirði, Grunnskóla Reyðarfjarðar og Stöðvarfjarðarskóla sem og elstu deilda leikskólanna á Reyðarfirði og Eskifirði. Í leikskólum Fjarðabyggðar sem og Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar munu svo matráðar í eldhúsum annast matseldina.

Matseðla hverrar viku er hægt að sjá hér.