Fara í efni
19.10.2026 Fréttir, Velferð og félagsþjónusta

Sjálfstæði og lífsgæði í fyrirrúmi í heimaþjónustu Fjarðabyggðar

Deildu
Rear view of a senior couple standing together in kitchen cooking food. Elderly woman watching her husband cook food standing in kitchen.

Í september voru 133 einstaklingar á 111 heimilum með samþykktan heimastuðning í Fjarðabyggð. Þjónustan tekur mið af þörfum hvers og eins og hefur það að markmiði að fólk geti búið heima, viðhaldið færni sinni og tekist á við daglegt líf með viðeigandi stuðningi.

Sjálfstæð búseta snýst um meira en að geta sinnt heimilisverkum. Líkamleg og andleg færni, félagsleg tengsl, virkni og öryggi hafa öll áhrif á getu fólks til að búa sjálfstætt og njóta góðra lífsgæða.

Fjölbreyttur stuðningur í daglegu lífi

Heimaþjónustan getur meðal annars falist í:

  • Félagslegum stuðningi og virkni, svo sem gönguferðum, hvatningu til hreyfingar og félagslegrar þátttöku.
  • Aðstoð við daglegt líf, meðal annars innkaup og önnur dagleg verkefni.
  • Stuðningi við heimilishald og heimsendum mat.
  • Ráðgjöf og leiðbeiningum um hvernig aðlaga megi daglegt líf að breyttum þörfum.

Ráðgjöfin getur til dæmis snúist um aðlögun húsnæðis, notkun hjálpar- og stuðningstækja eða aðferðir sem auðvelda daglegar athafnir og spara krafta. Oft geta einfaldar breytingar hjálpað fólki að halda áfram að sinna verkefnum þótt færni þess hafi breyst.

Að viðhalda færni og nýta eigin styrkleika

Mikil áhersla er lögð á að fólk haldi áfram að nýta þá færni sem það býr yfir. Með hvatningu, leiðbeiningum og stuðningi er unnið að því að viðhalda og efla getu hvers og eins.

Ef fólk hættir að sinna verkefnum sem það hefur enn getu til að leysa getur sú færni smám saman tapast. Því er stuðningurinn veittur með það að leiðarljósi að einstaklingurinn taki áfram virkan þátt í eigin daglegu lífi.

Félagslegur stuðningur er einnig mikilvægur hluti þjónustunnar. Gönguferðir, aðstoð við innkaup og hvatning til þátttöku geta dregið úr félagslegri einangrun og stuðlað að bættri líðan.

Heimaþjónustan styður jafnframt við fjölskyldur og aðstandendur. Góð samvinna og viðeigandi þjónusta geta aukið öryggi og skapað betra jafnvægi í daglegu lífi einstaklingsins og hans nánustu.

Heimaþjónustan í tölum

ÞjónustaFjöldi og hlutfall
Einstaklingar með samþykktan heimastuðning í september 2026133
Heimili með samþykktan heimastuðning í september 2026111
Einstaklingar sem fá heimsendan mat, að meðtöldum íbúum í þjónustuíbúðum55
Hlutur sveitarfélagsins í kostnaði við heimsendan matUm 45%

Mat og samstarf um þjónustuna

Þjónustuþörf er metin út frá heildaraðstæðum einstaklingsins. Þar er meðal annars horft til færni, heilsu, líðanar, félagslegrar þátttöku, öryggis og þess stuðnings sem þegar er til staðar. Þjónustan er síðan endurmetin eftir því sem þarfir og aðstæður breytast.

Starfsfólk heimaþjónustunnar byggir upp traust, hvetur til virkni og styður fólk í daglegu lífi. Starfið er fjölbreytt og krefst góðrar samskiptahæfni, frumkvæðis og getu til að mæta ólíkum þörfum.

Heimaþjónusta Fjarðabyggðar og heimahjúkrun Heilbrigðisstofnunar Austurlands vinna saman að þjónustu við fólk í heimahúsum. Samstarf og upplýsingamiðlun milli þjónustuaðila stuðla að samfelldum stuðningi.

Eldri íbúum fjölgar

Á árunum 2016–2026 fjölgaði íbúum Fjarðabyggðar um 8,8%, en íbúum 67 ára og eldri fjölgaði um 27,9%.

Þessi þróun kallar á áframhaldandi uppbyggingu þjónustunnar. Áhersla er á að efla færni, fyrirbyggja færniskerðingu og styðja fólk til sjálfstæðrar búsetu.

Hvernig er sótt um?

Íbúar sem telja sig þurfa stuðning við daglegt líf, eða aðstandendur sem vilja kynna sér hvaða úrræði standa til boða, geta haft samband við ráðgjafa fjölskyldusviðs Fjarðabyggðar.

Ráðgjafar veita upplýsingar, leiðbeina um mögulegan stuðning og aðstoða við umsóknarferlið eftir þörfum. Hægt er að hafa samband í síma 470 9000 eða senda tölvupóst á felagsthjonusta@fjardabyggd.is.

Umsóknum er skilað í gegnum Íbúagátt Fjarðabyggðar. Nánari upplýsingar um þjónustuna og gjaldskrá eru á vef Fjarðabyggðar.

Höfum augun opin fyrir fólkinu í kringum okkur

Ef þú hefur áhyggjur af líðan eða aðstæðum einhvers í þínu nærumhverfi hvetjum við þig til að hafa samband. Ráðgjafar fjölskyldusviðs geta veitt ráðleggingar og leiðbeint um mögulegan stuðning. Þú þarft ekki að vita fyrirfram hvort viðkomandi þurfi á þjónustu að halda til að leita ráða.