Fara í efni
13.02.2024 Fréttir

Starfsdagur tengiliða farsældar haldin í Fjarðabyggð

Deildu

Strax við fæðingu barns, eða eftir atvikum á meðgöngu, eiga foreldrar og börn rétt á þjónustu tengilðar eftir því sem þörf krefur. Hlutverk tengiliðar er fyrst og fremst að veita upplýsingar, aðstoða foreldra, barn og styðja við samþættingu á fyrsta stigi í samræmi við óskir foreldra og/eða barns. Umsóknir berast til tengiliðar í leik-, grunn- eða framhaldsskóla barnsins og á Fjölskyldusvið Fjarðabyggðar.

Á starfsdeginum var Hrafnkell Erlendsson með kynningu á One system sem notað er meðal annars fyrir rafrænar umsóknir í bæði leik-og grunnskólum Fjarðabyggðar.

Eyrún Inga Gunnarsdóttir, deildarstjóri tómstunda- og forvarnarmála, kynnti stöðu Barnvæns sveitarfélags og fór yfir nýja forvarnarstefnu Fjarðabyggðar sem samþykkt var í bæjarstjórn. Hægt er að nálgast forvarnarstefnuna hér.

Aníta Ómarsdóttir og Jóhanna Rut Stefánsdóttir tengiliðar farsældar í Eskifjarðarskóla voru með kynningu á því hvernig innleiðingin hefur gengið á fyrsta stigi hjá þeim og í kjölfarið sköpuðust líflegar umræður.

Inga Rún Beck Sigfúsdóttir, stjórnandi barnaverndar og innleiðingar farsældar og Bergey Stefánsdóttir, sérfræðingur í barnavernd og verkefnastjóri Spretts kynntu stöðu mála og fóru yfir næstu skref hvaða varðar innleiðingu á lögum um samþætta þjónustu.