Bæjarráð
938. fundur
30. mars 2026
kl.
08:30
-
00:00
í Molanum fundarherbergi 5
Nefndarmenn
Ragnar Sigurðsson
formaður
Jón Björn Hákonarson
varaformaður
Stefán Þór Eysteinsson
aðalmaður
Starfsmenn
Jóna Árný Þórðardóttir
bæjarstjóri
Þórður Vilberg Guðmundsson
embættismaður
Fundargerð ritaði:
Þórður Vilberg Guðmundsson
sviðsstjóri mannauðs- og umbótasviðs
Dagskrá
1.
Kaupsamningur og afsal um Bakkabakka 15
Framlögð drög að kaupsamningi vegna sölu Bakkabakka 15 til Leigufélagsins Bríetar ehf. Bæjarstjóra falið að ljúka við endanlegan samning við Bríeti og undirritun hans í framhaldi af því.
2.
Húsnæði Vinasels, frístundar Nesskóla, skólaárið 2026-2027
Vísað frá fjölskyldunefnd til afgreiðslu bæjarráðs tillögu um að gengið verði til samninga við Sparisjóð Austurlands um leigu á hluta af efri hæðinni að Egilsbraut 25, undir starfsemi Vinasels, skólaárið 2026-2027.
Bæjarráð samþykkir að gengið verði til samninga um leigu á fyrirliggjandi forsendum.
Bæjarráð samþykkir að gengið verði til samninga um leigu á fyrirliggjandi forsendum.
3.
Umsókn um þjálfun í janusarverkefninu- lyftingafélag RFJ
Vísað frá fjölskyldunefnd til afgreiðslu bæjarráðs drögum að endurnýjuðum samningi við Lyftingafélag Reyðarfjarðar um þjálfun í Janusarverkefninu.
Bæjarráð samþykkir samninginn og felur bæjarstjóra undirritun hans.
Bæjarráð samþykkir samninginn og felur bæjarstjóra undirritun hans.
4.
Umsókn um þjálfun í Janusarverkefninu - KFA
Vísað frá fjölskyldunefnd til afgreiðslu bæjarráðs drögum að endurnýjuðum samningi við Knattspyrnufélag Austfjarða um þjálfun í Janusarverkefninu.
Bæjarráð samþykkir samninginn og felur bæjarstjóra undirritun hans.
Bæjarráð samþykkir samninginn og felur bæjarstjóra undirritun hans.
5.
Ofanflóðavarnir Nes- og Bakkagil Norðfjörður
Fulltrúi Ofanflóðasjóðs og verkfræðistofunar Verkís mættu á fundinn og farið var yfir stöðu framkvæmda við ofanflóðavarnir í Fjarðabyggð.
6.
Eskifjarðarhöfn - stækkun
Farið yfir framkvæmdir við Eskifjarðarhöfn, hafnaraðstöðu við Leirubakka. Ljóst er að umfangsmiklar dýpkunarframkvæmdir þurfa að fara fram við Leirubakka í vor og því þarf að ljúka öðrum undirbúningsframkvæmdum fyrir þann tíma. Bæjarráð samþykkir að gengið verði til samninga vegna þessa á þeim forsendum að framkvæmdum verði lokið fyrir 15. maí nk. Bæjarstjóra er falin frágangur samninga og unndirritun þeirra.
7.
Stefna um opinbera þjónustu
Stefna um opinbera þjónustu lögð fram til kynningar.
8.
Spurningakönnun til kjörina fulltrúa
Framlögð drög að spurningakönnun til kjörina fulltrúa. Könnunin verður send á alla kjörna fulltrúa í Fjarðabyggð á næstunni.
9.
Frumvarp til laga um lax og silungsveiði, 530. mál
Framlagt til kynningar frumvarp til laga frá atvinnuvegaráðherra um lax- og silungsveiði.
10.
Frumvarp til laga um lagareldi mál 529
Framlagt til umsagnar frumvarp til laga frá atvinnuvegaráðherra um lagareldi. Bæjarstjóra falið að vinna umsögn vegna málsins.
11.
Til umsagnar 565.mál - verndar- og orkunýtingaráætlun (vindorka og verndarflokkur)T
Framlagt til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á lögum um verndar- og orkunýtingaráætlun - vindorka og verndarflokkar. Bæjarstjóra falið að vinna umsögn vegna málsins.
12.
Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga 2026
Framlögð til kynningar fundargerð 996. fundar stjórnar Sambandsins frá 20. mars 2026.
13.
Fundargerðir stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga 2026
Fundargerð stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga nr. 90. lögð fram til kynningar
14.
Ársfundur Austurbrúar 2026
Fundargerðir frá aðalfundi Sambands sveitarfélaga á Austurlandi og ársfundi Austurbrúar lagðar fram til kynningar.
15.
Fjölskyldunefnd - 55
Fundargerð fjölskyldunefndar frá 23. mars tekin til umfjöllunar og afgreiðslu.
16.
Stjórn menningarstofu - 34
Fundargerð stjórnar menningarstofu frá 23. mars tekin til umfjöllunar og afgreiðslu.
17.
Ungmennaráð - 23
Fundargerð ungmennaráðs frá 10. mars tekin til umfjöllunar og afgreiðslu.