Fara í efni

Fjölskyldunefnd

55. fundur
23. mars 2026 kl. 16:15 - 18:00
í Búðareyri 2 fundarherbergi 2
Nefndarmenn
Ragnar Sigurðsson formaður
Birgir Jónsson varaformaður
Helga Rakel Arnardóttir aðalmaður
Jóhanna Sigfúsdóttir aðalmaður
Stefán Þór Eysteinsson aðalmaður
Starfsmenn
Laufey Þórðardóttir embættismaður
Aðalheiður Björk Rúnarsdóttir
Líneik Anna Sævarsdóttir
Magnús Árni Gunnarsson
Fundargerð ritaði:
Laufey Þórðardóttir sviðsstjóri fjölskyldusviðs
Dagskrá
1.
Húsnæði Vinasels, frístundar Nesskóla, skólaárið 2026-2027
Málsnúmer 2603168
Fjölskyldunefnd samþykkir fyrir sitt leyti að gengið verði til samninga við Sparisjóð Austurlands um leigu á hluta af efri hæðinni að Egilsbraut 25, undir starfsemi Vinasels, skólaárið 2026-2027 og vísar málinu áfram til bæjarráðs.
2.
Skólavogin foreldrakönnun leik- og grunnskóla 2025-2026
Málsnúmer 2603201
Stjórnandi fræðslumála og skólaþjónustu kynnti niðurstöður úr Foreldrakönnun grunnskóla og leikskóla í Fjarðabyggð 2026. Unnið er með niðurstöður könnunarinnar innan hvers skóla, eins og gerð verður grein fyrir í umbótaáætlun hvers skóla. Einnig er ýmislegt í niðurstöðunum sem mikilvægt er að nýta í vinnu á Fjölskyldusviði. Stjórnanda fræðslumála og skólaþjónustu falið að kalla eftir ýtarlegri gögnum frá leikskólastjórum um vistunartíma.
3.
Starfsáætlun fjölskyldusviðs 2027
Málsnúmer 2602108
Starfsáætlun fjölskyldusviðs 2027 lögð fyrir fjölskyldunefnd. Sviðstjóra falið að vinna áfram að starfsáætlun með stjórnendum sviðsins.
4.
Umsókn um þjálfun í janusarverkefninu- lyftingafélag RFJ
Málsnúmer 2603053
Fjölskyldunefnd samþykkir samninginn fyrir sitt leyti og vísar til bæjarráðs.
5.
Umsókn um þjálfun í Janusarverkefninu - KFA
Málsnúmer 2602032
Fjölskyldunefnd samþykkir samninginn fyrir sitt leyti og vísar til bæjarráðs. Helga Rakel Arnardóttir vék af fundi undir þessum lið.
6.
Öldungaráð - 25
Málsnúmer 2603014F
Fundargerð Öldungaráðs til kynningar
7.
Ungmennaráð - 23
Málsnúmer 2602022F
Fundagerð ungmennaráðs kynnt
8.
Ungmennaráð - 22
Málsnúmer 2602007F
Fundagerð ungmennaráðs kynnt
9.
Öldungaráð - 24
Málsnúmer 2602008F
Fundargerð öldungaráðs lögð fyrir fjölskyldunefnd