Skipulags- og framkvæmdanefnd
56. fundur
8. apríl 2026
kl.
16:00
-
17:45
í Molanum fundarherbergi 5
Nefndarmenn
Þuríður Lillý Sigurðardóttir
formaður
Kristinn Þór Jónasson
varaformaður
Elís Pétur Elísson
aðalmaður
Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir
aðalmaður
Benedikt Jónsson
varamaður
Starfsmenn
Svanur Freyr Árnason
embættismaður
Aron Leví Beck Rúnarsson
embættismaður
Fundargerð ritaði:
Aron Leví Beck
Stjórnandi byggingar-, skipulags- og umhverfisdeildar
Dagskrá
1.
Umsókn um lóð Grímseyri 5, 750 Fáskrúðsfirði
Umsókn um lóð Grímseyri 5, 750 Fáskrúðsfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir framlagt lóðarblað og breytingu á byggingarreit samkvæmt uppfærðu deiliskipulagi. Reiturinn færist og er um 4 metra frá Grímseyri. Nenfdin samþykkir að úthluta lóðinni og vísar henni til endanlegrar afgreiðslu í bæjarráði.
2.
Byggingarleyfi Búðareyri 11-13 - Saltskemma
Byggingarleyfi Búðareyri 11-13 - Saltskemma. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir byggingaráformin og felur byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.
3.
Breyting á deiliskipulagi Miðbæjar Reyðarfjarðar Búðareyri 12
Auglýsingu á breytingu á deiliskipulagi Miðbæjar Reyðarfjarðar Búðareyri 12 er lokið. Ekki bárust efnislegar athugasemdir en umsagnir bárust frá Vegagerðinni og Minjastofnun. Tillagan var auglýst 9.02.2026 - 23.03.2026. Í framhaldi af auglýsingu kom í ljós að erfitt yrði að koma þremur húsum fyrir á reitnum og tillögunni því breytt þannig að gert er ráð fyrir tveimur húsum í stað þriggja. Auk þess var aðkomu að lóðinni breytt og er hún nú frá Búðareyri. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir áorðnar breytingar og felur skipulagsfulltrúa að auglýsa niðurstöður nefndarinnar. Málinu er vísað í bæjarstjórn til afgreiðslu.
4.
Grenndarkynning Skólavegur 50A 750 FASK
Borist hefur umsókn um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu að Skólavegi 50A á Fáskrúðsfirði. Fyrir liggur að taka afstöðu til grenndarkynningar á umsókninni. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur skipulagsfulltrúa að grenndarkynna byggingaráformin fyrir Skólavegi 50 og 52a.
5.
Óveruleg breyting á Deiliskipulag Miðbæjar Nesk - Hafnarbraut 6
Grenndarkynningu er lokið og barst ein umsögn á auglýsingatíma kynningarinnar frá Guðrúnu Óskarsdóttur. Fyrir liggur að taka afstöðu til umsagnarinnar og afgreiðslu málsins. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir óverulega breytingu á deiliskipulagi enn leggur áherslu á gott samráð milli allra hlutaðeigandi aðila. Málinu er vísað í bæjarstjórn.
6.
Umsókn um lóð Garðarholt 5, 750 Fáskrúðsfirði - Fyrirspurn
Fyrirspurn varðandi lóð Garðaholt 5. Skipulags- og framkvæmdanefnd kallar eftir tillögu að breytingu á deiliskipulagi þar sem hæðarsetning hússins og sneiðing í lóðina kemur fram.
7.
Íþróttahús Reyðarfjarðar: aðstaða og áhöld
Stjórnandi þjónustu- og framkvæmdamiðstöðvar og fasteigna- og framkvæmdafulltrúi leggja fram minnisblað vegna kostnaðar og lausna vegna erindi fjölskyldusviðs. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur stjórnanda þjónustu- og framkvæmdamiðstöðvar að uppfæra minnisblað og vísar málinu í bæjarráð.
8.
Gamli barnaskólinn á Eskifirði
Lagt fram minnisblað stjórnanda þjónustu- og framkvæmdamiðstöðvar vegna hleðslu við gamla barnaskólann á Eskifirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir að ganga að tillögu tvö eins og lagt er til í minnisblaðinu og vísar málinu í bæjarráð.
9.
Grunnskóli Reyðarfjarðar B-hús endurbætur
Niðurstöður verðkönnunar á endurbótum á B-húsi Grunnskólans á Reyðarfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir að ganga til samninga við lægstbjóðanda, VHE ehf.
10.
Framkvæmdaleyfi til grjótnáms úr námu í landi Hvalness í Stöðvarfirði
Umsókn um framkvæmdaleyfi til grjótnáms úr námu í landi Hvalness í Stöðvarfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir fyrirhugaðar framkvæmdir og felur skipulagsfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi.
11.
Byggingarleyfi Hæðargerði 1a
Umsókn um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu við Hæðargerði 1a. Skipulags- og framkvæmdanefnd telur byggingaráformin samræmast gildandi deiliskipulagi og samþykkir einnig byggingaráformin og felur byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.