Vetrarkort að skíðasvæðunum í Stafdal og Oddsskarði er frábær gjöf fyrir þau sem eiga allt og svo auðvitað fyrir þau sem elska útivist.
Fram að áramótum, eða til klukkan 23:59 þann 31. Desember, verður 20% afsláttur af kortum að skíðasvæðunum á Austurlandi. Kortin gilda jafnt að báðum svæðum svo ef það er ekki færi í öðru fjallinu þá er um að gera að kíkja í hitt.
Vetrarkortin veita aðgang í fjöllin frá janúar til maí.
Hægt er að nálgast gjaldskrár fyrir skíðasvæðin á heimasíðum sveitarfélagana, Fjarðabyggð annars vegar og Múlaþings hins vegar. Að lokum er gengið frá miðakaupum á síðu íþróttamiðstöðvar Fjarðabyggðar og skíðasvæðum Austurlands.
