Forráðamenn barna í Fjarðabyggð sem fædd eru árið 2020 og hefja grunnskólagöngu í haust eru beðnir um að skrá börnin í skóla.
Skráning fer fram á island.is – innritun í grunnskóla og frekari upplýsingar má finna á fjardabyggd.is – innritun í 1. bekk.
Hægt er að fylgjast með stöðu innritunar á Mínum síðum á island.is.
Nú fer innritun í 1. bekk fram með miðlægum hætti á landsvísu í nýjum Nemendagrunni í fyrsta sinn.
Frekari upplýsingar um fyrirkomulagið eru á Tímamót í skólakerfinu: Í fyrsta sinn heildstæð yfirsýn yfir skólagöngu barna á Íslandi.
Forráðamenn eru hvattir til að ljúka innritun sem fyrst.
Nemendur sem flytjast á milli grunnskóla eru einnig skráðir rafrænt á island.is – flutningur milli grunnskóla.
