Stundum losnar úrgangur ekki úr tunnu við tæmingu. Það getur gerst í frosti, ef pokar eru of stórir eða ef of mikið er troðið í tunnuna.
Góð ráð til að tryggja betri tæmingu
1. Ekki troða of mikið í tunnuna
Forðist að þjappa úrgangi niður. Ef tunnan er yfirfull eða lokið nær ekki að lokast eðlilega aukast líkur á að úrgangur festist. Yfirfullar tunnur eru ekki losaðar.
2. Notið poka í réttri stærð
Of stórir eða of þungir pokar geta klemst fastir og losna síður við tæmingu. Mælt er með 8 lítra maíspokum fyrir lífrænan úrgang.
3. Haltu úrganginum sem þurrustum
Hellið vökva af matarafgöngum og forðist að setja súpur, sósur eða annan vökva í poka. Þurrari úrgangur festist síður, sérstaklega í kulda.
4. Setjið efni í botninn ef þarf
Krumpað dagblað, eggjabakki eða rifinn pappi í botni tunnunnar getur dregið úr raka og komið í veg fyrir að pokar festist.
5. Athugið tunnuna á losunardegi
Það er á ábyrgð íbúa að úrgangur sé laus í tunnunni svo hægt sé að tæma hana. Gott er að losa varlega um innihaldið ef þess þarf áður en sorphirðubíllinn kemur.
Gott að hafa í huga:
Ef úrgangur situr eftir í tunnu ítrekað getur það valdið lyktarvandamálum og óþægindum þegar hlýnar.
Fyrir nánari upplýsingar um sorphirðu, flokkun og meðhöndlun úrgangs
