Fara í efni
11.05.2026 Tilkynningar

Umsóknir um leikskólapláss

Deildu

Foreldrar og forráðamenn eru hvattir til að sækja um leikskólapláss fyrir börn sín með góðum fyrirvara.

Nú í maí er unnið að skipulagningu leikskólastarfs næsta vetrar og því er gott að umsóknir um vistun berist sem fyrst. 

Með tímanlegri umsókn verður auðveldara að gera áætlanir og undirbúa komandi skólaár sem best.

Sótt er um leikskólavist rafrænt á vefnum og má finna umsóknareyðublöð á heimasíðum leikskólanna. Leikskólastjórar veita einnig aðstoð við umsóknir ef óskað er eftir því.

Hægt er að sækja um leikskólapláss um leið og kennitala barns hefur verið skráð.

Foreldrar eru því hvattir til að senda inn umsókn eins tímanlega og kostur er.

 

 

Frekari upplýsingar https://www.fjardabyggd.is/ibuar/born-ungmenni/leikskolar