mobile navigation trigger mobile search trigger
13.12.2023

,,Kjötdagar" í heimilisfræðismiðju í Eskifjarðaskóla

Undanfarin ár hafa hjónin Heiðberg Hjelm og Sjöfn Gunnarsdóttur á Útstekk gefið Eskifjarðaskóla kjöt sem svo hefur verið nýtt í heimilsfræðikennslu. Í haust fékk skólinn kindaskrokk.

,,Kjötdagar" í heimilisfræðismiðju í Eskifjarðaskóla

Nemendur byrjuðu dagana á því að afþýða frystikistuna og fyrstiskápinn. Eftir það hófust nemendur handa við að vinna kjötið. Nemendur hafa ekki bara lært að elda kjötið heldur meðhöndlun þess. Kristín Lukka, heimilisfræðikennari hefur kennt þeim að úrbeina, hakka, skera og pakka kjöti ásamt því að kenna þeim hvað hlutarnir heita. Úr slögunum unnu nemendur kjötfars og bjúgu en í þau var bætt hangikjöti til þess að þurfa ekki að reykja þau.

Eskifjarðarskóla áskotnuðust lambaslög og kjötbita  og úr því var búin til kæfa sem frístundaheimilið Dvölin ætlar að nýta sér í vetur.

Fleiri myndir:
,,Kjötdagar" í heimilisfræðismiðju í Eskifjarðaskóla
,,Kjötdagar" í heimilisfræðismiðju í Eskifjarðaskóla

Frétta og viðburðayfirlit