mobile navigation trigger mobile search trigger
28.04.2021

Leigufélagið Bríet og Fjarðabyggð óska eftir byggingaraðilum til að taka þátt í uppbyggingu íbúða

Leigufélagið Bríet stefnir á uppbyggingu á hagkvæmum leiguíbúðum á Fáskrúðsfirði og auglýsir því eftir byggingaraðilum til samstarfs. Byggingaraðili skal vera aðalverktaki og annast framkvæmd verkefnis í samráði við sveitarfélagið og Leigufélagið Bríeti.

Leigufélagið Bríet og Fjarðabyggð óska eftir byggingaraðilum til að taka þátt í uppbyggingu íbúða

Gögn fyrir samstarfsaðila er hægt að nálgast með að senda tölvupóst á soffia@briet.is og skal gögnum skilað fyrir mánudaginn 1. febrúar 2021. Við val á byggingaraðilum til samstarfs verður tekið tillit til reynslu aðila ásamt hagkvæmni og gæðum lausna.

Nánari upplýsingar veita Soffía Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri Bríetar (soffia@briet.is) og Elmar Erlendsson byggingafræðingur hjá HMS (elmar.erlendsson@hms.is).

Frétta og viðburðayfirlit