mobile navigation trigger mobile search trigger
08.11.2023

Matarmót Matarauðs Austurlands og Austfirskra krása um helgina

Klukkan 10:00 - 17:00

Landsins gæði – austfirsk hráefni er þema Matarmóts sem Matarauður Austurlands heldur þann 11. nóvember næstkomandi í Hótel Valaskjálf á Egilsstöðum. Matarmót Matarauðs Austurlands er haldið í þriðja sinn og stefnir í stærsta og glæsilegasta viðburðinn til þessa.

Matarmót Matarauðs Austurlands og Austfirskra krása um helgina

Á Matarmóti kynna austfirskir matvælaframleiðendur vörur sínar og bjóða gestum og gangandi að bragða á, allt frá sælgæti og sultum til þurrkaðs ærkjöts og annars lostætis. Í ár býðst einnig framleiðendum sem nýta austfirskt hráefni, annað en matvæli, að kynna sína vöru.

Mikil gróska er í matvælaframleiðslu í Fjarðabyggð og gaman að segja frá því að sex fyrirtæki úr Fjarðabyggð taka þátt í Matamótinu. 

En það eru Goðaborg/Beljandi á Breiðdalsvíkí flokki matvælaframleiðenda, Dómsdagseldhúsið, Kaffi Kvörn, Ástrós ehf og Þóra Björk í flokknum ,,Matur í mótun" og svo Luxury by Sabina, Fáskrúðsfirði í flokknum ,,vörur úr hráefnum frá Ausduturlandi". 

Dagurinn hefst klukkan 10 á málþingi sem ber yfirskriftina Landsins gæði. Þar mun Erna Rakel Baldvinsdóttir, starfsmaður rannsóknar- og greiningarteymis Austurbrúar, fara yfir niðurstöður könnunar sem lögð var fyrir íbúa Austurlands í vor þar sem m.a. var spurt um það hver landsins gæði eru á Austurlandi og hvort og þá hvernig íbúar eru að nýta þau og ýmislegt fleira. Þá verður einnig farið yfir niðurstöður úr samtölum við um tuttugu hagaðila sem hittust á tveimur rýnihópafundum.

Á málþinginu taka síðan til máls Vigdís Häsler, framkvæmdastjóri Bændasamtakanna, Ragna Óskarsdóttir, eigandi Íslensks dúns, Guðbjörg Gissurardóttir og Jón Árnason, eigendur Í boði náttúrunnar, og Kristín María Sigþórsdóttir, upplifunarhönnuður. Að afloknum fyrirlestrum verða pallborðsumræður.

Eftir málþingið verður boðið upp á hádegisverð þar sem hráefni frá Austurlandi verður í aðahlutverki (skráning nauðsynleg) og að því loknu, klukkan 13:30, hefst Matarmótið formlega. Fyrsta klukkutímann verður mótið lokað og þá fá veitinga- og söluaðilar matvæla, starfsfólk mötuneyta, heimilisfræðikennarar, verslunarstjórar og aðrir hagaðilar tækifæri til að ræða við framleiðendur, mynda tengsl og ræða samstarf. Klukkan 14:30 verður húsið opnað og þá eru öll velkomin að kíkja í Valaskjálf, bragða á ljúffengum mat og njóta þess besta sem matvælaframleiðendur á Austurlandi bjóða upp á. Í lok dags, frá 17 – 18, verður haldinn aðalfundur Austfirskra krása og er áhugafólk um starfsemi félagsins hvatt til að mæta.

Matarmótið er að venju ætlað sem stefnumót framleiðenda og kaupenda til að koma á tengslum og stofna til nýrra viðskiptasambanda. Í ár verður hluti Matarmótsins opinn og almenningi gefinn kostur á að kynna sér framleiðslu landshlutans.

Opið málþing um nýtingu austfirskra hráefna í víðu samhengi verður haldið í tengslum við Matarmótið og verður dagskráin kynnt þegar nær dregur. Hægt verður að kaupa hádegisverð að loknu málþingi.

Í ár verður bryddað upp á þeirri nýjung að matvælaframleiðendur, sem eru með „mat í mótun“, eru sérstaklega boðnir velkomnir. Óskað er eftir þátttöku þeirra sem eru að framleiða matvöru heima en hafa ekki tekið lokaskrefið í að sækja um starfs- og framleiðsluleyfi. Því til viðbótar stendur þem  framleiðendum frá Austurlandi til boða, sem eru að framleiða vörur (aðrar en mat) úr austfirsku hráefni, að vera með. Þeir aðilar verða að vera með framleiðsluleyfi fyrir vörurnar sínar. Þau sem telja sig tilheyra öðrum hvorum hópnum eru hvött til að skrá sig og/eða hafa samband við verkefnastjóra Matarauðs Austurlands.

Hvetjum öll áhugasöm um að mæta.

Frétta og viðburðayfirlit