mobile navigation trigger mobile search trigger
08.10.2020

Stuðningur fyrir konur í fyrirtækjarekstri á landsbyggðinni

Ert þú kona með rekstur (eða hyggur á rekstur) á Austurlandi? Hefurðu upplifað tíma þar sem þú stendur frammi fyrir áskorun eða verkefni og þyrftir helst að fá ráð frá einhverjum, sem hefur gengið í gegnum svipað? Austurbrú býður nú upp á svokallaða hæfnihringi á netinu fyrir konur á áðurnefndum landssvæðum. 

Stuðningur fyrir konur í fyrirtækjarekstri á landsbyggðinni

Hæfnihringirnir eru samstarfsverkefni nokkurra landshlutasamtaka/atvinnuþróunarfélaga en auk Austurbrú koma Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra, Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi eystra, Samtök sunnlenskra sveitarfélaga og Vestfjarðarstofa að verkefninu.

Hæfnihringir eru byggðir á aðferðafræði, sem kallast aðgerðanám, en það grundvallast á því að nota raunverulegar áskoranir, verkefni og tækifæri sem grunn fyrir lærdóm. Markmiðið er að aðstoða frumkvöðlakonur til að komast yfir hindranir með því að a) styrkja hæfni og færni þeirra, b) veita stuðning í formi fræðslu og hagnýtra tækja til eflingar og hvatningar og c) að efla tengslanet þeirra. Hringjunum er stýrt af leiðbeinanda í gegnum Zoom, sem er gjaldfrjálst netforrit.

  • Deildu þínum áskorunum, verkefnum og tækifærum með öðrum konum og fáðu ráðleggingar á jafningjagrundvelli.
  • Vertu í mátulega krefjandi en samt öruggu umhverfi þar sem hugmyndir geta verið reyndar og þróaðar.
  • Stækkaðu tengslanet þitt með konum, sem eru á svipuðum sporum og þú.

Fyrsti netfundurinn er þriðjudaginn 13. október kl. 14:30. Lagt er upp með 4-5 fundi með tveggja vikna millibili, hver fundur er ca 1,5 klst.

Nánari upplýsingar veitir Signý Ormarsdóttir hjá Austurbrú // signy@austurbru.is // 470 3811

Frétta og viðburðayfirlit