mobile navigation trigger mobile search trigger
09.11.2020

Tilkynning til hunda- og kattaeigenda í Fjarðabyggð – Ormalyfsgjöf 2020

Á tímum heimsfaraldurs og hertra sóttvarnareglna er nauðsynlegt breyta fyrirkomulagi ormalyfsgjafa fyrir hunda og ketti. Í stað þess að eigendur komi með dýrin sýn til ormahreinsunar verða ormalyf sent til allra skráðra eigenda í Fjarðabyggð, ásamt fylgiseðli og leiðbeiningum.

Tilkynning til hunda- og kattaeigenda í Fjarðabyggð – Ormalyfsgjöf 2020

Þeir sem ekki treysta sér til þess að gefa lyfið sjálfir geta leitað til dýralæknis sem lyfið sendi eða velja annan dýralækni til inngjafar lyfsins. Dýralæknar: Hákon Hansson, Fáskrúðsfjörður, Stöðvarfjörður, Breiðdalsvík og Daníel Haraldsson, Neskaupstaður, Eskifjörður, Reyðarfjörður.

Einnig er heimilt að velja aðra dýralækna til inngjafar á ormalyfi óski eigandinn þess, mikilvægt er að geta nafns og númer dýrsins.

Nánari upplýsingar má fá hjá dýraeftirliti Fjarðabyggðar í síma 470 9000 eða dýraeftirlit@fjardabyggd.is.  Einnig bendum við á Facebookarsíðu dýraeftirlits Fjarðabyggðar, Gæludýr í Fjarðabyggð, en þar má finna ýmsar hagnýtar upplýsingar ásamt upplýsingum um dýralæknaþjónustu á Austurlandi.

Frétta og viðburðayfirlit