mobile navigation trigger mobile search trigger
16.05.2025

Viðtalstímar bæjarráðs og bæjarstjóra

Bæjarráð og bæjarstjóri munu bjóða uppá viðtalstíma í öllum bæjarkjörnum Fjarðabyggðar næstu daga. Íbúum stendur til boða að fá viðtal við bæjarstjóra og bæjarráð í grunnskólum og bókasöfnum sveitarfélagsins. Ekki er tekið við bókunum í þessa viðtalstíma.

 

Viðtalstímar bæjarráðs og bæjarstjóra

Þeim, sem geta ekki nýtt sér þessa tíma, er bent á að ávallt er hægt að bóka viðtalstíma við bæjarstjóra, en hún er með viðtalstíma á þriðjudögum frá klukkan 10 -12. Hægt er að bóka í síma 470-9000 eða á netfangið fjardabyggd@fjardabyggd.is

Viðtalstímarnir eru á eftirfarandi tímum:

Bókasafnið á Reyðarfirði Mánudagur 12. maí 17:30-18:30
Bókasafnið á Fáskrúðsfirði Þriðjudagur 13. maí 17:00-18:00
Grunnskólinn í Breiðdalsvík Miðvikudagur 14. maí 16:30-17:30
Grunnskólinn á Stöðvarfirði Miðvikudagur 14. maí 18:00-19:00
Bókasafnið á Norðfirði þriðjudagur 20. maí 16:30-17:30
Bókasafnið á Eskifirði Þriðjudagur 20. maí 18:00-19:00
Sólbrekka Mjóafirði Miðvikudagur 21. maí 12-13

Frétta og viðburðayfirlit