Fara í efni

Á fætur í Fjarðabyggð – Göngu og bátsferð á Barðsneshorn

Dags
20. júní
Kl.
10:00 - 16:00
Staðsetning
Safnahúsið, Neskaupstaður
Viðburður á Innsævi - 10.000 kr. / 5.000 kr. fyrir 16 ára og yngri
Deildu

Gönguvikan Á fætur í Fjarðabyggð hefst á lokadegi Innsævis með göngu og bátsferð um Barðsneshorn þar sem þátttakendur sigla frá Neskaupstað og velja á milli þriggja leiða um Barðsnes, Rauðubjörg, Mónes og Sandfell. Leiðirnar bjóða upp á stórbrotið landslag, steingervinga og fjölbreytta náttúru undir leiðsögn reyndra fararstjóra. Báturinn sækir göngufólk síðdegis og ferðinni lýkur um kvöldið. Nauðsynlegt er að skrá sig fyrir föstudaginn 19. júní kl. 12:00 hjá Sævari Guðjónssyni í síma 698 6980 eða á mjoeyri@mjoeyri.is.