Í tilefni þess að Magnús Pálsson er fyrsti listamaður Fjarðabyggðar verður heimildamyndin Á Skjön sýnd samhliða dagskrá sýningarinnar Óður til niðarins. Myndin fylgir Magnúsi af nærfærni í gegnum sköpunarferli sitt og varpar ljósi á einn áhrifamesta brautryðjanda íslenskrar nútímalistar. Þar fléttast saman hversdagsleikinn, húmorinn og heimspekilegar vangaveltur um listina sjálfa; hvað hún er, hvernig hún verður til og hvort hún þurfi yfirhöfuð að meika sens. Á Skjön er persónuleg og lifandi mynd sem opnar inn í heim þar sem hugmyndir, tilraunir og forvitni fá að ráða ferðinni.
Á Skjön – Verk og dagar Magnúsar Pálssonar
Dags
10. júní
Kl.
17:00 - 19:30
Staðsetning
Valhöll á Eskifirði
Viðburður á Innnsævi - Gjaldfrjálst
