Fara í efni

ÆSKULÝÐSDAGAR BLÆS

Dags
11. júní - 14. júní
Staðsetning
Kirkjubólseyum
Hestamannafélagið Blær á Norðfirði heldur sína árlegu æskulýðsdaga á Kirkjubólseyrum dagana 11.–14. júní.
Deildu

Hestamannafélagið Blær á Norðfirði heldur sína árlegu æskulýðsdaga á Kirkjubólseyrum dagana 11.–14. júní. Allir krakkar að 18 ára aldri sem geta útvegað sér reiðskjóta eru velkomnir. Dagskráin hefst fimmtudaginn 11. júní kl. 20:00 í Dalahöllinni með setningu æskulýðsdagana og þá eiga allir að vera mættir með hestana sína inn á félagssvæði. Mikilvægt er að mæta á setninguna en þar er á dagskrá hópefli og fræðsla um ýmislegt sem þátttakendur þurfa að tileinka sér.

Nauðsynlegt er að foreldri eða fullorðinn forráðamaður fylgi ungum og/eða óreyndum knöpum.

Á æskulýðsdögum dvelja þátttakendur gjarnan á félagssvæðinu allan tímann og gista í tjöldum/hýsum ef veður leyfir en annars í félagshúsinu. Ekki þarf að taka með sér nesti og þátttaka er ókeypis. Ýmislegt skemmtilegt verður á dagskrá með hestamennskunni, farið verður í sund, ýmiskonar hópastarf, óvissuferð, grillað, haldnar kvöldvökur o.fl.

Facebooksíða hestamannafélagið Blær