Með nýútgefinni plötu ásamt því að vera nýr brekkusöngvari Þjóðhátíðar í Eyjum, langar mig að nýta tækifærið og halda tónlistardag fyrir bæjarfélög víðsvegar um landið, ásamt hljómsveit.
Og þann 22.maí ætla ég yfir daginn að kíkja með gítarinn á nokkra vel valda staði á Eskifirði , og svo klukkan 18:00 verða fjölskyldutónleikar með hljómsveit.
Fjölskyldu tónleikarnir verða í kirkjunni og verður frítt inn í boði Eskju.
Tónleikarnir verða um 60 mínútur og því hentugt fyrir allan aldur. Þar ætla ég að flytja í bland eigið efni ásamt barna og brekkusöngs lögum fyrir alla til að syngja með.
Hlakka rosalega mikið til að koma á Eskifjörð og ég sé ykkur vonandi sem flest
Sjáumst!
Ágúst Brynjarsson
