Fara í efni

Alþjóðlegi safnadagurinn 18. maí á Stríðsárasafninu

Dags
18. maí
Kl.
10:00 - 16:00
Staðsetning
Íslenska stríðsárasafnið, Reyðarfirði
Alþjóðlegi safnadagurinn er 18. maí, yfirskrift dagsins í ár er: Söfn sem sameiningarafl í sundruðum heimi.
Deildu
Alþjóðlegi safnadagurinn er 18. maí, yfirskrift dagsins í ár er: Söfn sem sameiningarafl í sundruðum heimi. Sem vettvangur fræðslu og þekkingar gegna söfn mikilvægu hlutverki í að efla friðsamleg samskipti og gagnkvæma virðingu. Af því tilefni býður Menningarstofa upp á gjaldfrjálsan aðgang að Stríðsárasafninu milli 10-16. Í nýju litahorni safnsins verða litamyndir, trélitir og vaxlitir fyrir börnin. Litahornið verður til staðar í allt sumar og fram að opnun í nýju húsnæði safnsins 2027. Einnig verður gjaldfrjáls aðgangur að Franska safninu á Fáskrúðsfirði þennan dag og leiðsagnir kl. 11:00, 13:00 og 16:30.