Friðgeir Kristjánsson opnar sýninguna Austurland frá Glettingi / Jusqu'à Paris þar sem unnið er með ólíkar hugmyndir um Austurland, annars vegar út frá persónulegri reynslu og hins vegar ímyndunum úr fjarlægð. Á sýningunni mætast verk Friðgeirs og franska listamannsins Victor sem hefur unnið teikningar byggðar á hugmyndum sínum um staðinn án þess að hafa áður komið hingað. Sýningin verður þannig samtal milli landslaga, minninga, fjarlægðar og ímyndunarafls.
Austurland frá Glettingi / Jusqu'à Paris
Dags
14. júní
Kl.
15:00 - 17:00
Staðsetning
Þórsmörk, Þiljuvellir 11 Neskaupstað
Viðburður á Innsævi - Gjaldfrjálst
