Öldungaráð í samstarfi við félög eldra fólks í Fjarðabyggð endurtaka vinsælt fræðsluerindi sem Sigurjón Rúnarsson, sjúkraþjálfari og eigandi Heilsuhreystis, hélt á Fáskrúðsfirði í nóvember síðastliðnum. Hann meðal annars yfir þær líkamlegu breytingar sem fylgja hækkandi aldri, hvað hægt er að gera til að vinna gegn afleiðingum þeirra og veitir einföld og hagnýt ráð til að draga úr algengum verkjum og bæta hreyfigetu. Erindið er ætlað öllum sem vilja viðhalda betri heilsu, auka lífsgæði og efla færni til daglegra athafna, óháð aldri og fyrri reynslu af hreyfingu. Við bjóðum ykkur hjartanlega velkomin og hvetjum alla 60 ára og eldri til að nýta sér þetta einstaka tækifæri.
Einföld ráð fyrir betri líkamsheilsu á efri árum
Dags
18. maí
Kl.
16:30 - 18:00
Staðsetning
Heiðabær, Melgerði 13, Reyðarfirði
Hvernig breytist líkaminn með hækkandi aldri og hvað getum við gert til að halda heilsu?
