Dagana 20.-22. apríl, heimsækja sérfræðingar hjá Netvís, Fjarðabyggð og bjóða upp á fjölbreytta fræðslu um samfélagsmiðla og skjánotkun, til nemenda, foreldra og eldra fólks. Það verða þeir Haukur Brynjarsson og Skúli Bragi Geirdal sem koma og heimsækja alla grunnskólana og VA.
Margir kannast við fjölbreytt fræðsluefni og lifandi fræðslu sem þeir hafa boðið upp á og nánar má lesa um á vef netvis.is.
Verum snjöll og notum netið af skynsemi. Skjátími barna aldurstakmörk á samfélagsmiðlum, samskipti á netinu, áreitni og deiling mynda. Heilræði, verkfærakistur og gagnlegt stuðningsefni.
Foreldrafræðsla verður í boði eins og hér segir og foreldrar geta mætt í þann skóla sem best hentar.
Mánudaginn 20. apríl
17:00 Breiðdals- og Stöðvarfjarðarskóli Breiðdalsvík
17:00 Grunnsskóli Fáskrúðsfjarðar
20:00 Eskifjarðarskóli
Þriðjudaginn 21. apríl
17:00 Nesskóli
17:00 Grunnskóli Reyðarfjarðar
Mánudaginn 20. apríl
13:30 Eldra fólk Fáskrúðsfirði (Glaðheimar)
14:00 Eldra fólk Stöðvarfirði og Breiðdal (Stöðvarfjörður, Balaborg)
Þriðjudaginn 21. apríl
15:00 Eldra fólk Eskifirði (húsnæði félag eldra fólks, Melbær)
15:00 Eldra fólk Reyðarfirði (Melgerði)
Miðvikudaginn 22. apríl
15:00 Eldra fólk Norðfjörður (Egilsbúð)
