Fara í efni

Framboðsfundir Austurfréttar/Austurgluggans 2026

Dags
9. maí
Kl.
12:00 - 14:00
Staðsetning
Nesskóli
Austurfrétt/Austurglugginn standa fyrir framboðsfundum bæði í Fjarðabyggð og Múlaþingi í beinni útsendingu þar sem kjósendur geta komið að sínum spurningum.
Deildu

Austurfrétt/Austurglugginn standa fyrir framboðsfundum bæði í Fjarðabyggð og Múlaþingi í beinni útsendingu þar sem kjósendur geta komið að sínum spurningum.

Fundurinn í Fjarðabyggð verður sendur út klukkan 12:00 á laugardag en fundurinn í Múlaþingi klukkan 20:00 á sunnudag. Þeir verða sendir út í gegnum Austurfrétt og á vefnum birtist frétt með útsendingunni skömmu fyrir upphaf fundar.

Á fundunum verður aðeins spurt út úr spurningum sem borist hafa í gegnum vefkerfi. Þar er líka hægt að kjósa með spurningum sem gefur fundarstjóra vísbendingar um mikilvægustu málefnin. 

Með þessu fyrirkomulagi er leitast við að íbúar í þessum dreifðu sveitarfélögum hafi jafnan möguleika á að koma sínum spurningum á framfæri, óháð búsetu. Um leið tryggir þetta að spurningar séu hnitmiðaðar. Þannig er hægt að koma fleiri málefnum á framfæri á fundunum.

Notast er við kerfi sem heitir Menti og hefur verið notað á fjölmörgum íbúafundum, sem og fyrri kosningafundum Austurfréttar/Austurgluggans. Það er þegar opið og verður opið þar til hvorum fundi lýkur.

Hægt er að senda inn spurningar fyrir Múlaþing með því að fara á Menti.com og slá inn kóðann 3706 5252 eða fara á slóðina https://www.menti.com/alrzhqv8tjsb

Til að senda inn spurningar á fundinn í Fjarðabyggð er farið á Menti.com og sleginn inn kóðinn 3467 4284 eða fylgt slóðinni:
Senda inn spurningu