Fara í efni

glott.fest á Innsævi

Dags
5. júní
Kl.
19:00 - 23:00
Staðsetning
Egilsbúð Neskaupstað
glott.fest tónleikar fyrir ungt fólk í Egilsbúð.
Deildu

glott.fest eru kvöldtónleikar fyrir ungt fólk, en opin öllum aldurshópum. Tónleikarnir eru haldnir í anda grasrótar og framsækinnar tónlistar þar sem ungir, skapandi og upprennandi listamenn skapa kúl og örvandi andrúmsloft sem hvetur til þátttöku og gleði.

Á sviðinu í ár koma fram Kári Kresfelder, Anya Shaddock, Lottó, Alaska1867, CYBER og DJ Mellí. Line-upið blandar saman listafólki með tengingar við svæðið og rísandi nöfnum að sunnan í einstöku kvöldi sem fangar ferska strauma í íslensku tónlistarsenunni.

glott.fest er hluti af Innsævi, tvíæringi og lista- og menningarhátíð Fjarðabyggðar sem fer fram dagana 1.–20. júní. Innsævi sameinar listir, menningu og samfélag í fjölbreyttri dagskrá um allt sveitarfélagið og leggur áherslu á skapandi starf, samveru og þátttöku heimafólks og gesta.

Tónleikarnir fara fram 5. júní. Hurðir opna kl. 19:00 og dagskrá stendur til kl. 23:00. Að tónleikum loknum tekur við eftirpartý á Beituskúrnum með DJ Mellí frá kl. 23:00 og frameftir nóttu.

Viðburðurinn er haldinn í samstarfi við sjómannadagshelgina í Neskaupstað og með stuðningi frá Hildibrand og SÚN. Á laugardagskvöldinu verður einnig dansleikur þar sem miðasala fer eingöngu fram við hurð og miðaverð er 3.900 kr.

Miðar keyptir fyrir kvöldið er 2.900 kr. á Tix

Nánari upplýsingar um dagskrá Innsævis má finna á samfélagsmiðlum Menningarstofu, @menningarstofa á Facebook og Instagram.