Julie Lie leiðir röð skapandi jurtanámskeiða þar sem náttúruleg efni, sjálfbærni og handverk mætast. Í Þórsmörk verður unnið með jurtalitun, í Grunnskólanum á Reyðarfirði verða til vatnslitir úr plöntum, í Skrúði verður ull þæfð í sjálfbæra ræktunarpotta og í Sköpunarmiðstöðinni verður unnið með shibori textílaðferðir og mynsturgerð. Námskeiðin leggja áherslu á efniskennd, tilraunir og tengsl við náttúruna í hlýlegu og skapandi umhverfi. Skráning á menningarstofa@fjardabyggd.is
Julie Lie – Skapandi jurtanámskeið
Dags
15. júní
Kl.
17:00 - 20:00
Staðsetning
Skrúður - Fáskrúðsfjörður
Viðburður á Innsævi - 5.000 kr. fyrir eitt námskeið / 15.000 kr. fyrir öll fjögur námskeiðin
