Sundlaug Eskifjarðar er lokuð vegna viðhalds, stefnt er að opna aftur 27. ágúst. 

Fara í efni

Komdu og mótaðu framtíð Stríðsárasafnsins

Dags
18. ágúst
Kl.
17:30 - 18:30
Staðsetning
Stríðsárasafnið Reyðarfirði
Áhugasömum gefst kostur á að taka þátt í samtali um mótun, starfsemi og framtíð Stríðsárasafnsins á opnum fundi þriðjudaginn 18. ágúst.
Deildu

Áhugasömum gefst kostur á að taka þátt í samtali um mótun, starfsemi og framtíð Stríðsárasafnsins á opnum fundi þriðjudaginn 18. ágúst.

Fundurinn verður haldinn á Stríðsárasafninu og hefst kl. 17:30. Þar munu Sara Blöndal, sýningarstjóri nýs Stríðsárasafns, og starfsfólk Menningarstofu ræða hugmyndir og framtíðarsýn safnsins með fundargestum.

Öll áhugasöm eru hvött til að mæta, taka þátt í samtalinu og koma sínum sjónarmiðum á framfæri.