Kvæðakórinn kemur fram utandyra í fjörunni við Fáskrúðsfjörð þar sem verkið sækir innblástur í austfirskar sagnir, þjóðtrú og kvæði. Flutningurinn vísar meðal annars í sögur af Skrúðsbóndanum og sameinar kvæði, gamlar stemmur og leikræn augnablik í landslaginu. Með náttúrulegum efniviði frá svæðinu verður samkomusvæðið mótað á nærfærinn hátt og skapar viðburðurinn áhrifaríka upplifun þar sem rödd, staður og þjóðsögur fléttast saman.
Kvæðakórinn
Dags
11. júní
Kl.
19:00 - 20:00
Staðsetning
Bryggjan fyrir aftan Franska spítalann, Fáskrúðsfirði
Viðburður á Innsævi - Gjaldfrjálst
