Fara í efni

Ljóðalestur & Fish Factory takeover

Dags
16. júní
Kl.
15:00 - 21:00
Staðsetning
Sólbrekka, Mjóafirði
Viðburður á Innsævi - Gjaldfrjálst / gisting bókuð í gegnum gistiheimilið.
Deildu

Skáldið Helgi Belgi les upp ljóð í Sólbrekku í Mjóafirði á meðan listamenn í gestadvöl hjá Fish Factory taka yfir dagskrána með gjörningum, tónlist og óvæntum uppákomum. Viðburðurinn blandar saman ljóðlist, tilraunakenndri tónlist og skapandi samveru í einstöku umhverfi þar sem gestir geta komið og farið yfir daginn. Gestir eru hvattir til að eyða nóttinni í Mjóafirði og bóka gistingu tímanlega svo þau megi njóta listakosta kvöldsins án þess að drífa sig til baka.