Fjarðabyggðarhafnir boða til kynningarfundar fyrir íbúa um framtíðaruppbyggingu Mjóeyrarhafnar þriðjudaginn 16. júní kl. 17–19 í Grunnskólanum á Reyðarfirði.
Á fundinum verður fjallað um tækifæri til vaxtar, fjárfestinga og aukins samkeppnisforskots fyrir Austurland, þar sem Mjóeyrarhöfn mun gegna lykilhlutverki í atvinnu- og samfélagsþróun svæðisins.
Íbúar eru hvattir til að mæta og kynna sér áætlanir um framtíð hafnarinnar.
Öll velkomin.
