Fara í efni

Óður til niðarins - sýningaropnun Magnús Pálsson, Ásdís Sif Gunnarsdóttir, Tinna Guðmundsdóttir, Vikram Pradhan, Kata Jóhanness & Linus Lohman

Dags
5. júní
Kl.
16:00 - 20:00
Staðsetning
Gamli Barnaskólinn á Eskifirði
Viðburður á Innsævi - Gjaldfrjálst
Deildu

Sýningin Óður til niðarins er haldin í tilefni þess að Magnús Pálsson verður fyrsti listamaður Fjarðabyggðar en hann fæddist á Eskifirði 1929. Í verkum hans hefur niðurinn, í náttúru, í hugum okkar, tali og tónlist, lengi verið undirliggjandi afl; hljómur sem umlykur skynjun okkar og tengir saman landslag, hugmyndir, líkama og tungumál. Á sýningunni vinna listamennirnir út frá ólíkum stefum í skapandi ferli Magnúsar þar sem skörun gjörninga, hugmyndalistar og efniskenndar mætast. Verk sýningarinnar vísa meðal annars til náttúrufyrirbæra, hljóðs, dýra, tungumáls og hversdagslegra efna þar sem orð, niðurinn og form verða að lifandi samtali milli kynslóða. Sýningin leitast við að fanga andrúmsloftið sem einkennir verk Magnúsar; eitthvað óljóst en stöðugt, barnslegt og heimspekilegt í senn.