Fara í efni

Opnun Gallerí Kolfreyju

Dags
1. júní
Kl.
11:00 - 17:00
Staðsetning
Gallerí Kolfreyja, Tanga, Fáskrúðsfirði
Viðburður á Innsævi - Gjaldfrjálst.
Deildu

Gallerí Kolfreyja opnar dyr sínar fyrir sumarið í Tanga á Fáskrúðsfirði þar sem hópur handverkskvenna kynnir afrakstur vetrarins. Í gamla kaupfélagshúsinu má finna fjölbreytt handverk unnið af alúð og natni; ullarvörur, silfurskartgripi, textílverk, kortagerð og ýmsa nytja- og listmuni. Galleríið hefur frá stofnun árið 2013 verið vettvangur fyrir skapandi samfélag heimafólks þar sem handverk, hefðir og persónuleg sköpun mætast í hlýlegu og lifandi rými.