Á Sjómannadaginn opnar myndasýningin Kringum Gerpi í sýningarsalnum á efri hæð Randulffssjóhúss. Á sýningunni má líta vel valdar myndir úr útvegslífi Gerpissvæðisins, í landi og úti á miðum, frá síðari hluta 20. Aldar. Sýningin er samstarfsverkefni Menningarstofu Fjarðabyggðar, Skjala- og ljósmyndasafns Fjarðabyggðar, Sjóminjasafns Austurlands og Ferðaþjónustunnar Mjóeyri.
Opnun sjómyndasýningarinnar Kringum Gerpi
Dags
7. júní
Kl.
16:00 - 18:00
Staðsetning
Randulffssjóhúsi, Eskifirði
Viðburður á Innsævi - Gjaldfrjálst
