Fara í efni

'See and Feel' eftir Dileydi Florez

Dags
13. júní kl. 14:00 -
18. júlí kl. 17:00
Staðsetning
Templarinn - Búðavegur 8, 750 Fáskrúðsfirði
Viðburður á Innsævi - Gjaldfrjálst
Deildu

Sýningaropnun: 13. júní, kl. 14–17:00
Opnunartími: 13. júní – 18. júlí, Laugardaga 14–17:00

Sýningin „See and Feel“ eftir Dileydi Florez opnun í Templaranum á Fáskrúðsfirði 13. júní frá kl. 14 til 17.

Sýningin, sem hluti af Innsævi, sýnir ný og valin verk sem sköpuð voru í Portúgal og á Íslandi á árunum 2015 til 2026. Með línum, formum og litum endurspeglar sýningin athygli listamannsins á fínlegum smáatriðum og skynjunarupplifunum. Verkin, sem byggja á athugun og forvitni, bjóða gestum að hægja á sér, næra ímyndunaraflið og ganga inn í þann kyrrláta og nána heim sem listamaðurinn lýsir sem „garðinum mínum“.

Sýningin býður upp á innsýn í bæði sköpunarferli listamannsins og einstakt myndmál hennar. Dileydi Florez er fjölgreina myndlistarkona, fædd í Bogotá í Kólumbíu og uppalin í Portúgal. Hún vinnur með teikningu, málverk, ritstjórnarhönnun, myndasögum og keramiklist.

„See and Feel“ verður opið til 18. júlí og allir eru velkomnir í heimsókn á opnunartíma, laugardaga frá kl. 14 til 17.