Silfurskotturnar opna dyrnar að silfurverkstæðinu í kjallara Þórsmerkur þar sem gestir geta kynnst handverki og sköpunarferli hóps kvenna sem hafa hist og unnið saman um árabil. Á vinnustofunni verða sýnd fjölbreytt silfurverk, allt frá skartgripum og nælum til víraverka þar sem handbragð, efniskennd og persónuleg nálgun fá að njóta sín. Opin vinnustofa gefur innsýn í samfélag skapandi kvenna og þá hefð handverks sem hefur þróast í sameiginlegu rými yfir langan tíma.
Silfurskotturnar – Opin vinnustofa
Dags
9. júní
Kl.
16:00 - 18:00
Staðsetning
Þórsmörk, Neskaupstað
Viðburður á Innsævi - Gjaldfrjálst
