Sköpunarmiðstöð: Endurlit leiðir saman listafólk sem tengist Sköpunarmiðstöðinni í Stöðvarfirði, þar á meðal listafólk sem hefur starfað við miðstöðina og fyrrum þátttakendur í gestavinnustofu hennar. Sýningin lítur yfir meira en áratug af listrænu starfi, samtali og tilraunum sem hafa mótast af miðstöðinni og alþjóðlegu samfélagi hennar. Sköpunarmiðstöðin var stofnuð árið 2011 og hefur vaxið í að verða mikilvæg menningarmiðstöð og alþjóðleg gestavinnustofa listafólks á Austurlandi. Árið 2025 hlaut hún Eyrarrósina fyrir framlag sitt til menningarlífs utan höfuðborgarsvæðisins. Sýningin verður fyrst kynnt á Listahátíð í Reykjavík dagana 1.–14. júní áður en hún flyst í Sköpunarmiðstöðina þann 20. júní sem hluti af Innsævi.
Sköpunarmiðstöð: Endurlit
Dags
20. júní
Kl.
14:00 - 16:00
Staðsetning
Sköpunarmiðstöð, Stöðvarfirði
Viðburður á Innsævi - Gjaldfrjálst
