Sköpunarmiðstöðin: Yfirlitssýning leiðir saman verk eftir listafólk sem tengst hefur Sköpunarmiðstöðinni á Stöðvarfirði, þar á meðal listafólk sem hefur starfað við miðstöðina og fyrrum þátttakendur í gestavinnustofu hennar. Sýningin varpar ljósi á rúman áratug af skapandi starfsemi, samtali, tilraunum og listrænu samstarfi sem hefur mótast í kringum miðstöðina og alþjóðlegt samfélag hennar. Þar má sjá fjölbreytt listform, ólíkar vinnuaðferðir og verk sem endurspegla hlutverk Sköpunarmiðstöðvarinnar sem vettvangs fyrir listræna sköpun, miðlun og tilraunastarfsemi á Austurlandi. Sköpunarmiðstöðin var stofnuð árið 2011 og hefur síðan þróast í mikilvæga menningarmiðstöð og alþjóðlega gestavinnustofu fyrir listafólk á Austurlandi. Árið 2025 hlaut miðstöðin Eyrarrósina fyrir framlag sitt til menningarlífs utan höfuðborgarsvæðisins. Sýningin var fyrst kynnt á Listahátíð í Reykjavík dagana 1.–14. júní og hefur nú verið flutt heim til Stöðvarfjarðar, þar sem hún opnaði í Sköpunarmiðstöðinni þann 20. júní sem hluti af Innsævi. Sýningin verður opin til loka ágúst, mánudaga til föstudaga kl. 10:00–15:00. Ef dyrnar eru lokaðar, vinsamlegast hringið bjöllunni.
Sköpunarmiðstöðin Yfirlitssýning
Dags
20. júní kl. 10:00 -
31. ágúst kl. 15:00
31. ágúst kl. 15:00
Staðsetning
Sköpunarmiðstöðin / Fish Factory
Yfirlitssýning Sköpunarmiðstöðvarinnar leiðir saman verk eftir listafólk sem tengst hefur miðstöðinni og gestavinnustofu hennar í gegnum árin.
