Epla π: Lokasýning í Þórsmörk
Sýningaropnun: 23. maí, kl. 14:00 – 17:00
Opnunartíma: 24. – 29. maí, kl. 16:00 – 18:00
Á sýningunni „Epla π“ er siglt inn í hringiðu.
Kannski hangir þetta allt saman. Eplabátarnir urðu til á sama hátt og tímabeltin sem fólkið teiknaði á jarðhnöttinn. Beinar línur skipta skífuritinu upp í gráður á meðan kaffið skilur eftir hring í skrifstofubollanum.
Í ferli Heklu ýmist hlerar hún eða tekur þátt í samtölum og líkamstjáningu efnisheimsins. Hún gaumgæfir skurðpunkta manna og hluta og hverfast verkin á sýningunni um spennuna sem hún mætir á vettvangi. Manngert landslag er í brennidepli.
„Epla π“ verður opin til 29. maí og eru allir velkomnir að heimsækja Þórsmörk á opnunartíma, sunnudags til föstudags frá 16:00–18:00.
