Sundlaug Eskifjarðar er lokuð vegna viðhalds, stefnt er að opna aftur 27. ágúst. 

Fara í efni

Sýningaropnun: *VÖLVUMYRKVI: she who helps us see past corners* eftir Helgu Dorotheu Fannon

Dags
29. ágúst
Kl.
14:00 - 16:00
Staðsetning
Þórsmörk - Þiljuvellir 11, 740 Neskaupstað
Þann 29. ágúst opnar sýningin *VÖLVUMYRKVI: she who helps us see past corners* eftir listakonuna Helgu Dorotheu Fannon í Þórsmörk. Helga hefur dvalið í Þórsmörk listamannasetri og unnið að nýjum verkum þar sem hún fléttar saman hreyfimyndum, hljóði, skúlptúrum og innsetningum.
Deildu

Verkefnið á rætur sínar að rekja til rannsókna Helgu á Völvuleiði fyrir ofan Reyðarfjörð og Eskifjörð, en þaðan hefur vinnan undið upp á sig og orðið að stærri vefnaði sem samanstendur af minningum, dulspeki, goðafræði, landslagi og persónulegri reynslu.

Í verkunum verður völvan að þræði í gegnum þessa ólíku heima. Myndefni, fundnir hlutir, náttúrugripir og hljóð sem Helga hefur safnað í og í kringum Neskaupstað og á ferðum sínum um Austurland fléttast saman við rannsóknir hennar og handverk. Hún særir fram augnablik þar sem hið hversdagslega verður framandi, töfrum hlaðið eða órætt.

Einkasýning Helgu VÖLVUMYRKVI: she who helps us see past corners er í sýningarstjórn Þórhildar Tinnu Sigurðardóttur. Sýningaropnun verður laugardaginn 29. ágúst kl. 14:00 í Þórsmörk, Neskaupstað. Hún stendur opin til 31. október.