Tækifæri og framtíð lista og menningar í landsbyggðunum
Austurbrú, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið og Menningarstofa Fjarðabyggðar standa fyrir Skapandi Austurlandi – ráðstefnu um stöðu, tækifæri og framtíð lista og menningar í landsbyggðunum.
Á dagskrá eru erindi, pallborð og vinnustofur þar sem rætt verður um nýja menningarstefnu Austurlands, nýsköpun í skapandi greinum, starfsumhverfi listafólks og uppbyggingu stoðkerfa utan höfuðborgarinnar. Fulltrúar menningarmiðstöðva víðs vegar um landið, stjórnvalda og Rannsóknaseturs skapandi greina leiða saman krafta sína í samtali um hlutverk listarinnar í samfélaginu og framtíð skapandi atvinnu á Austurlandi.
Kaffi og veitingar verða í boði en skráning er nauðsynleg vegna hádegisverðar á Randulfssjóhúsi.
Dagskrá
Ráðstefnustjóri: Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri Fjarðabyggðar
10:15
Kaffi, spjall og Óður til niðarins myndlistarsýning
10:45
Opnunarávarp. Logi Már Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra
10:55
Kynning á dagskrá. Þórhildur Tinna Sigurðardóttir, forstöðumaður Menningarstofu Fjarðabyggðar
11:00
Kynning á nýrri menningarstefnu Austurlands. Signý Ormarsdóttir, verkefnastjóri menningar hjá Austurbrú, og Eva Jörgensen, verkefnastjóri samfélagsþróunar
11:15
Rannsóknarsetur skapandi greina: Mótun og vöxtur. Erla Rún Guðmundsdóttir, forstöðukona Rannsóknaseturs skapandi greina
11:25
Rannsóknasetur skapandi greina í landsbyggðum: Verkefni og rannsóknir. Steinunn Hauksdóttir, verkefnastjóri og sérfræðingur
11:35
Menning, vertíð og verðmætasköpun. Arnar Sigurðsson, stofnandi Austan mána
12:00
Hádegisverður á Randulfssjóhúsi
13:00
Íslenskt menningarlíf – stefna, stuðningur og starfsumhverfi. Arna Kristín Einarsdóttir, skrifstofustjóri menningar og skapandi greina hjá menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu
13:30
Tengsl og tengingar – vistkerfi menningarlífs Austurlands. Tinna Guðmundsdóttir, myndlistarkona og menningarstýra
13:50
Miðstöðvar listgreina; bókmennta, myndlistar, sviðslista, hönnunar, kvikmynda og tónlistar
14:20
Spurningar og umræður
14:40
Vinnustofa. Jóna Hlíf Halldórsdóttir, forseti Bandalags íslenskra listamanna
15:50
Ráðstefnu slitið. Bryndís Fiona Ford, framkvæmdastjóri Austurbrúar
Dagskrá að ráðstefnu lokinni
16:00–16:30
Ferðatími: Eskifjörður – Reyðarfjörður
16:30–17:00
Léttar veitingar á Reyðarfirði á myndlistaropnun Önnu Ólafar Jansdóttur og Louisu Matthíasdóttur
17:00–17:30
Ferðatími: Reyðarfjörður – Stöðvarfjörður
17:30–18:30
Sköpunarmiðstöðin heimsótt
19:00
Náttúrusöngvar með kvæðakórnum. Kvæði kvödd, innblásin af staðarþekkingu og þjóðsögum af Skrúðskarlinum
19:15
Kvöldmatur á L’Abri, Fosshóteli Fáskrúðsfirði
