Fara í efni

Tíu dagar til jóla - Aðventutónleikar í Tónspil

Dags
15. desember
Kl.
17:00 - 18:00
Staðsetning
Tónspil, Neskaupstað
Svanhvít og Árni ætla að spila inn jólin með klassísk, popp og jafnvel smá djass í Tónspil.
Deildu

Svanhvít blæs í franska hornið og Árni í básúnuna svo úr verður undurfagur hljómur. Þessi hljóðfærasamsetning hefur sjaldan, ef nokkurn tímann, heyrst í Neskaupstað og því eru þetta tónleikar sem enginn tónlistarunnandi má láta framhjá sér fara. Á dagskrá eru sígild jólalög úr öllum áttum, mörg þeirra í nýjum útsetningum Árna og Daníels Arasonar. Á boðstólum verður ekta heitt súkkulaði og smákökur. Tónleikarnir eru styrkir af Menningarsjóði SÚN og því er frítt inn!