Fara í efni

Umhverfisráðstefna Austurlands - Horfum til sjávar

Dags
5. júní
Kl.
11:30 - 15:30
Staðsetning
Egilsbúð, Neskaupstað.
Umhverfisráðstefna Austurlands verður haldin í Egilsbúð í Neskaupstað þann 5. júní undir yfirskriftinni Horfum til sjávar. Á ráðstefnunni verður fjallað um orkuskipti í sjávarútvegi, áhrif loftslagsbreytinga á hafið, fiskeldi, fullnýtingu hráefna og framtíðarhorfur uppsjávarstofna. Fram koma sérfræðingar úr rannsóknum, atvinnulífi og sjávarútvegi og að erindum loknum verður opið spjall og tengslamyndun.
Deildu

Umhverfisráðstefna Austurlands verður haldin í annað sinn þann 5. júní í Egilsbúð í Neskaupstað undir yfirskriftinni Horfum til sjávar. Ráðstefnan er samstarfsverkefni Austurbrúar og Eyglóar og er ætlað að skapa vettvang fyrir samtal um umhverfismál, sjálfbæra þróun og framtíð auðlindanýtingar á Austurlandi. Að þessu sinni verður sjónum beint að hafinu, sjávarútvegi og þeim breytingum sem fram undan eru í nýtingu auðlinda, orkuskiptum og þróun greinarinnar. Fram koma sérfræðingar úr rannsóknum, atvinnulífi og sjávarútvegi sem fjalla meðal annars um áhrif loftslagsbreytinga á hafið, fullnýtingu hráefna, fiskeldi, uppsjávarstofna og orkuskipti í sjávarútvegi. Málefnin snerta Austurland með beinum hætti enda er sjávarútvegur ein af grunnstoðum atvinnulífs og verðmætasköpunar í fjórðungnum. Markmið ráðstefnunnar er að efla samtal, miðla þekkingu og skapa vettvang fyrir tengslamyndun þvert á atvinnulíf, rannsóknir og samfélag. Boðið verður upp á súpu á Hótel Hildibrand frá kl. 11:30 og dagskrá hefst í Egilsbúð kl. 12:15. Að erindum loknum verður opið spjall og tengslamyndun. Allar nánari upplýsingar á: austurbru.is/umhverfisradstefna-austurlands-horfum-til-sjavar/