Útsæðið fagnar 10 ára afmæli
Í ár eru tíu ár frá því að bæjarhátíðin Útsæðið var fyrst haldin og jafnframt eru 240 ár liðin frá því að Eskifjörður varð kaupstaður.
Útsæðið er fjölskylduhátíð þar sem íbúar, gestir og gangandi koma saman og njóta samverunnar á Eskifirði. Að venju verður fjölbreytt dagskrá í boði og ættu flestir að finna eitthvað við sitt hæfi.
Á dagskránni eru meðal annars froðudiskó í sundlauginni, tónlist, PubQuiz, myndlistasýning, fótbolti, hoppukastalar, hverfakeppni, kassabílarallý, dansleikur og ýmis afþreying fyrir alla fjölskylduna.
Á laugardeginum verður jafnframt boðið til veislu á hátíðarsvæðinu þar sem tíu lambaskrokkar verða grillaðir fyrir gesti. Hátíðinni lýkur svo á sunnudeginum með afmæliskaffi Eskifjarðar þar sem meðal annars verður sýnt gamalt myndefni frá Eskifirði og nágrenni.
Dagskrá
Miðvikudagur
18:00–20:00 – Froðudiskó í sundlauginni
Sundlaugin verður opin til kl. 21:00. Að því loknu verður hún lokuð vegna viðgerða til 27. ágúst.
Fimmtudagur
Hverfagrill
Hverfin eru hvött til að koma saman og halda hverfagrill. Keppt verður um hvaða hverfi nær upp mestu stemningunni.
21:00 – PubQuiz í Valhöll
Föstudagur
15:00–17:00 – Myndlistasýning í Hulduhlíð
Helga Axelsdóttir, Geir Hólm, Steinunn Sigurðardóttir og Agnieszka Kula sýna valin verk.
18:00 – Leiknir – Neisti
Styrktarleikur fyrir Dagnýju Ósk Vestmann. Útsæðisgengið selur hamborgara á staðnum og öll innkoma af sölunni, ásamt aðgangseyri á leikinn, rennur í söfnunina.
21:00–01:00 – Uppistand og tónlistargleði í Valhöll
Húsið opnar kl. 20:00. Miðasala við hurð, 4.000 kr.
Valli – sjötta barnið – byrjar kvöldið og því næst stígur Ási Guðna á svið. Að uppistandi loknu halda Andri Bergmann, Siggi Þorbergs og Kalli Stock uppi fjörinu til kl. 01:00.
Laugardagur – á og við Eskjutún
10:30 – Kökukeppni krakka í tjaldinu
12:00 – Kassabílarallý Tanna Travel
13:00 – Hátíðarsvæðið á túninu opnar
Hoppukastalar, markaðstjöld, Kraftmót Austurlands, Esk Factor hæfileikakeppni og fleira.
13:15 – Hverfakeppni á frystihúsbryggjunni
14:45 – Búbbluhlaup frá hátíðarsvæðinu
15:00–17:00 – Myndlistasýning í Hulduhlíð
17:00–20:00 – Tónlist og afþreying í tjaldinu
Gestum verður boðið frítt að borða. Grillaðir verða tíu lambaskrokkar ásamt pylsum.
Barinn á Hótel Eskifirði verður opinn til kl. 23:00.
23:00–03:00 – Dansleikur í Valhöll
Þrjú bönd – eitt ball.
Ballbandið, Selfoss og Spegilmynd í mannshjarta.
Happy hour á bjór og víngosi til miðnættis.
18 ára aldurstakmark. Aðgangseyrir 3.500 kr.
Sunnudagur – Valhöll
13:00–17:00 – Afmæliskaffi Eskifjarðar
„Nýtt“ gamalt myndefni frá Tóta Hæja frá Eskifirði og nágrenni verður sýnt í bíóinu. Boðið verður upp á kaffi, kökur og vöfflur.
15:00–17:00 – Myndlistasýning í Hulduhlíð