Víkurvaki, ný tónleikaröð Menningarstofu Fjarðabyggðar og Frystihússins á Breiðdalsvík, sameinast Bændaballi í sérstöku sumarkvöldi. Kvöldið verður fullt af lifandi tónlist, dansi og kraftmikilli stemningu þar sem sveitamenning og tónleikaupplifun mætast í hráu og lifandi rými Frystihússins. Viðburðurinn er hluti af þeirri nýju áherslu að efla Frystihúsið sem mikilvægan vettvang fyrir tónlist og menningu á Austurlandi.
Víkurvaki x Bændaball
Dags
19. júní
Kl.
20:30 - 23:30
Staðsetning
Frystihúsið, Breiðdalsvík
Viðburður á Innsævi - 5900kr
