Skapandi smiðjur, samstaða og óperutónlist setja svip sinn á október í Fjarðabyggð. BRAS heldur áfram fram til 11. október, Bleikur október vekur athygli á krabbameinum hjá konum og nýstofnuð Ópera kemur í Eskifjarðarkirkju með dagskrána Undir sömu stjörnu.
Sköpun og samvera á BRAS
Á menningarhátíðinni BRAS er fjölbreytt dagskrá fyrir börn, ungmenni og fjölskyldur. Í Fjarðabyggð er meðal annars boðið upp á bókagerð, leir- og pappamassasmiðjur, náttúrugöngu, hljóðgervlasmiðju og tröllasýninguna Gýpu. Allir viðburðir hátíðarinnar eru ókeypis, en skráning er nauðsynleg á suma þeirra.
Sýnum samstöðu í Bleikum október
Fjarðabyggð styður Bleikan október og býður starfsfólki upp á fræðslu frá Krabbameinsfélagi Austfjarða. Átakið vekur athygli á krabbameinum hjá konum og mikilvægi stuðnings við þær sem greinast og aðstandendur þeirra. Bleiki dagurinn verður 21. október og þá eru íbúar hvattir til að klæðast bleiku og sýna samstöðu.
Undir sömu stjörnu í Eskifjarðarkirkju
Sunnudaginn 25. október kemur nýstofnuð Ópera fram í Eskifjarðarkirkju með söngdagskrána Undir sömu stjörnu. Sýningin er hluti af opnunardagskrá Óperunnar sem ferðast um landið.
Söngvarar Óperunnar flytja nokkrar af fegurstu perlum óperusögunnar. Leikarar Þjóðleikhússins, Ólafía Hrönn Jónsdóttir og Örn Árnason, leiða áhorfendur í gegnum söguna, frá hirðsölum Ítalíu að Íslands ströndum. Þar fléttast saman tónlist, fróðleikur og skemmtun.
Íbúar og gestir eru hvattir til að kynna sér viðburðadagatal Fjarðabyggðar og finna eitthvað við sitt hæfi.
