Óperan kemur í Eskifjarðarkirkju á sunnudag og Dagar myrkurs hefjast um helgina. Framundan eru dagar þar sem kirkjur verða að ljósalistaverkum, þjóðsögur lifna við og tónlist, myndlist og skáldskapur gefa tilefni til að fara út og njóta samverunnar. Dagskráin í Fjarðabyggð nær frá laugardeginum 24. október til mánaðamóta.
Undir sömu stjörnu í Eskifjarðarkirkju
Stór viðburður helgarinnar er söngdagskráin Undir sömu stjörnu, sem Óperan flytur í Eskifjarðarkirkju sunnudaginn 25. október kl. 15:00. Heimsóknin er hluti af opnunardagskrá hinnar nýstofnuðu Óperu, sem ferðast um landið til að færa landsmönnum óperutónlist.
Söngvarar flytja perlur óperusögunnar og leikararnir Ólafía Hrönn Jónsdóttir og Örn Árnason leiða gesti í gegnum söguna, frá hirðsölum Ítalíu að Íslands ströndum. Þar fléttast saman tónlist, fróðleikur og skemmtun.
Hvort sem óperan er gamall kunningi eða nýr heimur að kanna er hér tækifæri til að njóta hennar í heimabyggð. Miðasölu má nálgast á vef Þjóðleikshússins eða í síma 551-1200.
Fyrsti vetrardagur með skáldskap og kaffibolla
Dagar myrkurs hefjast laugardaginn 24. október, á fyrsta degi vetrar. Í Þórsmörk í Neskaupstað verður hægt að leyfa huganum að reika og prófa eitthvað nýtt.
Klukkan 14:00 leiðir Eyrún Úa ritlistarvinnustofuna Ósjálfráð skrif. Þar verða draumar, hugsanir og undirmeðvitundin uppspretta innblásturs. Vinnustofan er opin áhugasömum á öllum aldri og engin fyrri reynsla af skrifum er nauðsynleg.
Klukkan 16:00 taka ljóðskáldin Axel Bragi Andrésson og Leifur Helgi Konráðsson við með ljóðalestri yfir kaffibolla. Aðgangur að báðum viðburðum er ókeypis. Þórsmörk er að Þiljuvöllum 11.
Þjóðsögur, náttúruhljóð og færeyskir tónar
Á mánudag og þriðjudag býður sagnaþulan Berglind Ósk gestum inn í heim íslenskra þjóðsagna, þar sem huldufólk, draugar og aðrar kynjaverur koma við sögu. Sögustundirnar verða á bókasafninu í Neskaupstað 26. október og á bókasafninu á Stöðvarfirði 27. október, báða daga kl. 16:00. Aðgangur er ókeypis.
Mánudagskvöldið býður líka upp á ólíkar leiðir inn í heim tónlistar og myndlistar. Klukkan 20:00 verður mynd- og hljóðinnsetningin Misseraskipti í Bragganum við Stríðsárasafnið á Reyðarfirði. Þar vinna Ella Medicus og Ótal, í samstarfi við Antoníu Berg, með myndir og hljóð úr náttúrunni í nágrenni Neskaupstaðar.
Í BRJÁN í Neskaupstað stígur færeyska tónlistarkonan Guðrið Hansdóttir á svið kl. 20:30, með tónlist af nýjustu plötu sinni, Sýrublað, í farteskinu. Húsið opnar kl. 20:00.
Þrjár kirkjur í nýju ljósi
Hvernig ætli Völvan á Hólmahálsi birtist í ljósum og hljóðum? Listahópurinn Mercury Maze gefur þjóðsögunni nýtt líf með gagnvirkri vörpunarlist þar sem gestir geta sjálfir orðið hluti af verkinu.
Ljósalistaverkið verður við Reyðarfjarðarkirkju 27. október, Fáskrúðsfjarðarkirkju 28. október og Norðfjarðarkirkju 29. október, kl. 20:00–22:00 öll kvöldin. Aðgangur er ókeypis.
Síðar í vikunni verða einnig listasýning Jonu Bergdal Jakobsdóttur í Rauða húsinu í Beituskúrnum í Neskaupstað og lokaviðburður sýningarinnar VÖLVUMYRKVI: she who sees past corners í Þórsmörk. Dagskránni lýkur með hrekkjavökupartíi í Valhöll á Eskifirði laugardaginn 31. október.
Veldu þér viðburð, bjóddu einhverjum mð og njóttu þess sem er framundan. Í viðburðadagatali Fjarðabyggðar má finna nánari upplýsingar um dagskrá, staðsetningar og miðasölu.
