Matur, sköpun og saga eru meðal þess sem er á dagskrá í viðburðadagatali Fjarðabyggðar um helgina og í næstu viku.
Laugardaginn 14. nóvember kl. 14:00–17:00 verður Matarmót Matarauðs Austurlands haldið í Sláturhúsinu á Egilsstöðum.
Fimmtudaginn 19. nóvember kl. 16:00–17:00 býður listamaðurinn Mollie Tilley til þjóðsagnasköpunarsmiðju á Bókasafninu í Neskaupstað. Þar skapa þátttakendur eigin persónur, sögur og ímyndaða heima með teikningum og skapandi tilraunum. Smiðjan er opin öllum aldurshópum og tilvalin fyrir börn og fjölskyldur.
Föstudaginn 20. nóvember kl. 20:00 flytur Guðni Th. Jóhannesson, sagnfræðingur og fyrrverandi forseti Íslands, erindi í Egilsbúð um landhelgismálið og baráttu Íslendinga fyrir yfirráðum yfir fiskimiðunum. Að viðburðinum standa Menningarstofa Fjarðabyggðar, Héraðsskjalasafnið í Neskaupstað og SÚN.
Afmælistónleikum frestað
Afmælistónleikunum í tilefni 70 ára tónlistarkennslu í Neskaupstað, sem áttu að fara fram 14. nóvember, hefur verið frestað vegna slæmrar veðurspár. Ný dagsetning verður auglýst síðar.
Nánari upplýsingar um viðburðina má finna í viðburðadagatali Fjarðabyggðar.
